miðvikudagur, 8. september 09 2010

MAXIMAN YFIRBURÐA VARMADÆLUR

Hafin er sala á varmadælum.
Staðlaðar lausnir sem og sérlausnir.
Varmadælur í öllum stærðum
og fyrir mismundandi aðstæður.

MAXIMAN_varmadaelur.pdf





 

Um Frostmark

Frostmark ehf. var stofnað árið 1996 með megin áherslu á kæli- og frystitækni.
Starfsemin hefur aukist jafnt og þétt og í dag er Frostmark eitt af leiðandi fyrirtækjum landsins í hönnun og smíði kæli- og frystikerfa með víðtæka reynslu jafnt innanlands sem og erlendis.

Náið og persónulegt samstarf Frostmarks með viðskiptavinum sínum hefur gert fyrirtækinu kleift að bjóða upp á heildarlausnir sem tryggja þann áreiðanleika og hagkvæma rekstur sem nauðsynlegur er í hverskonar nútíma iðnaði.

Starfsmenn Frostmark, sem eru í dag um 15 talsins, hafa áralanga reynslu að baki í greininni og geta tekist á við hverskonar verkefni á sviði kæli- og frystitækni. Jafnframt er Frostmark í nánu samstarfi við ýmsa verktaka á véla- og rafmagnssviði þegar um stærri og viðameiri verkefni er að ræða.

Viðskiptavinir Frostmarks koma úr ýmsum greinum atvinnulífsins, m.a matvælaiðnaði, útgerð, verslun, líftækni og rannsóknargeiranum.

Framtíðarsýn Frostmarks ehf. er að vera ávallt í fremstu röð á alþjóðamarkaði í hönnun, smíði og markaðssetningu frysti- og kælikerfa.